Gott að sjá Lilja var með kjark til að lesa nýja IceSave frumvarpið og mynda sér síðan sína eigin raunverulega skoðun!

Í Silfri Egils núna rétt áðan kom Lilja Mósesdóttir fram og sagðist hafa ákveðið að styðja EKKI nýja IceSave frumvarpið.  Þetta er náttúrulega stórfrétt sem mikið mun verða fjallað um næstu daga.  Það sem ég tók nú samt best eftir þarna í þættinum, var eftirfarandi setning Lilju: 

"Síðan  les ég frumvarpið sem núna liggur fyrir þinginu og ég get bara ekki samþykkt þetta"

Þess væri óskandi að fleiri þingmenn færu nú að dæmi hennar og raunverulega læsu yfir nýja IceSave frumvarpið. 

Við þurfum að gera okkur fulla grein fyrir efnahagslegum afleiðingum frumvarpsins, áður en það er "sjálfkrafa" samþykkt.  Eins og ég hef fjallað um hér í fyrri færslum hér, hér, hér, og hér, eru því miður margir stórir vankantar á nýja frumvarpinu eins og það var samið.


mbl.is Getur ekki samþykkt Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Offari

Kosturinn við suma í liði VG er að þeir standa við orð sín. Vonandi er hægt að finna leið til að hafna Icesave allfarið, en ég er samt hræddur um að farið verði ESB leiðina og frumvarpið endurtekið þangað til það verður samþykkt.  Það finnst mér vera sóun á dýrmætum tíma.

Offari, 1.11.2009 kl. 14:06

2 identicon

Þegar staðið er frammi fyrir tveimur slæmum kostum, þá er rétt að velja skárri kostinn og að hafa kjark til þess.

Getur ekki reynsla þín í "bestun á sviði aðgerðargreiningar"hjálpað til við að gera sér grein fyrir afleiðingunum af því að fella frumvarpið?

magnus (IP-tala skráð) 1.11.2009 kl. 14:14

3 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Magnus - þ.e. kjarni málsins. En, hvor er skárri kosturinn, í þínum augum?

Ríkisstjórnin og stuðningsmenn hennar, hafa eina skoðun. Meirihluti þjóðarinnar, og andstaðan - aðra.

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 1.11.2009 kl. 15:28

4 Smámynd: Bjarni Kristjánsson

Ég hef nú aðallega verið að nota bakgrunn minn (aðgerðargreininguna), til að reyna að sjá til þess að við séum allavega að vinna með "réttar" tölur og útreikninga. :-)

En það má halda þessu áfram og nota síðan leikjafræði (game theory) til að reyna að meta næstu skref:

a) Nýtt frumvarp um IceSave samning samþykkt
    - Allt lítur vel út næstu árin þar til skuldaþol Íslands bregst 
b) Nýtt frumvarp um IceSave samning fellt
    c) Sest aftur að samningaborðinu
        e) Reynt að laga fyrirvarana upp á nýtt
            - Fer enn aftur fyrir þing
        f) Endursamið frá grunni
            - T.d. lægri vextir og Ragnar Hall ákvæðið gegn eftirgjöf á öðrum kröfum B&H?
        g) Samningar takast ekki
            - Upprunalegi IceSave samningurinn felldur af B&H (sjá d).
    d) IceSave samningurinn felldur af Bretum og Hollendingum
        h) B&H lögsækja íslenka ríkið fyrir íslenskum dómstólum
            - Gera líklega kröfu um að ekki sé mismunað eftir þjóðerni og reyna að fella neyðarlögin.  Dæmt eftir íslenskum lögum. 
        i) B&H lögsækja íslenska ríkið fyrir evrópskum dómstólum
            - Sömu kröfur og h), en líklega frekar miðað við evrópsk lög og lagatúlkanir
        j) B&H ákveða að fresta málinu og gera í staðin kröfur beint í þrotabúið
            - Hið besta mál fyrir okkur, en því miður frekar ólíklegt.
        k) B&H halda áfram að beita EB/AGS sem kúgun á Ísland til að gefast upp og borga allt sem krafist er.
            - Mjög líklegt að þessu haldi áfram þar til samningar takast að lokum.

Það væri gott ef við gætum sett inn raunverulegar prósentur og reiknað út hver besta útkoman væri, en það eru einfaldlega allt of margar óþekktar stærðir í þessu, til að það sé raunhæft.

Bjarni Kristjánsson, 1.11.2009 kl. 17:41

5 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Gylfi Magnússon, viðurkenndi í síðustu viku, að lánin frá Norðurlöndunum, verði líklega að einhverju leiti, notuð til að standa straum af afborgunum af öðrum lánum - sérstaklega, eins mjög stór afborgun árið 2011.

Þannig, geta mál sannarlega flotið um hríð, þangað til að peningurinn er búinn. En, ef öllum tilraunum til að verja krónuna er sleppt - er jafnvel ekki útilokað, að hægt væri að treyna þetta fé, út kjörtímabilið.

En, horfurnar eru slæmar, um framhaldið:

  • skuldugt atvinnulif.
  • skuldug heimili.
  • skuldugt ríki og aðrir opinberir.

Ergo, horfur um hagvöxt eru dökkar. Í þessu samhengi, hljómar það mjög ólíklegt, að ofurbjartsýn hagspá ríkisstjórnarinnar frá því í sumar, komi til með að rætast. Skýrsla Hagfræði Stofnunar HÍ, var sennilega nær lagi, en þar var spáð í kringum 2% meðalhagvöxt. En, þeir viðurkenndu, að þeir væru ekki búnir að reikna fyllilega inn í spá sína, ímis neikvæð áhrif á hagvöxt af útbreiddri skuldabyrði.

Svo, að jafnvel tölur um 2% meðalhagvöxt, eru líklega heldur bjartsýnar. Milli 1 og 2%, er nær lagi. 

Helsti sénsinn, til að ná fram hagvexti umfram þetta, liggur þá í erlendri fjárfestingu og ferðamennsku. Það eru auðvitað, allnokkur fjöldi fjárfestinga verkefna, er gætu komist á koppinn. Og, ef helmingur þeirra gerir það, þá væri hægt að bæta aftur við hagvaxtar-horfur.

En, í þessu samhengi, verður ríkisstjórnin að fara varlega, í innleiðingu nýrra skatta, þ.s. raunveruleg hætta er á að drepa gullgæsina, jafnvel áður en hún er farin að verpa gulleggjum.

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 1.11.2009 kl. 20:07

6 Smámynd: Björn Birgisson

Sæll, eins og sérð ef þú skoðar mína síðu á ég enga vini. Það er pólitík af minni hálfu. Takk fyrir boðið. BB

Björn Birgisson, 1.11.2009 kl. 20:45

7 Smámynd: Ellert Júlíusson

Það fer ávallt í taugarnar á stjórnmálamönnum ef að hjarðeðlisfræði þeirra er stofnað í hættu.

Sjálfstæðar skoðanir eru hættulegar og geta hreinlega leitt til annara niðurstaðna en óskað er eftir.

Ellert Júlíusson, 3.11.2009 kl. 16:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband